Ingvar Jónsson
Ingvar Jónsson

Rithöfundur · markþjálfi · hugsuður

Sjálfsþekking er grunnur allrar annarrar þekkingar.

Kjarni flestra bóka minna snýr að ferðalagi okkar inn á við – hvernig einlæg sjálfsþekking umbreytist í hugrekki, stefnufestu og dýpri forystufærni.

Lesa nýjustu skrifin Skoða bækurnar
2019
One of 101 Global Coaching Leaders
World Coaching Congress
2021
Excellence in Creativity
ACRE Award
2022
Global HR
Maverick
Global award
2023
Most Iconic Coaching Leader
World Coaching Congress

Höfundur 14 bóka, fjögurra á íslensku og tíu á ensku  ·  PCC-vottaður fagþjálfi með 3.500+ klst. reynslu

Kápa: The Power of Cognitive Clarity eftir Ingvar Jónsson

Kemur út í janúar 2027

Fyrsta bókin í Power-röðinni

Hvernig hugurinn klippir veruleikann til, felur skærin og kallar útkomuna sannleikann. Fjórar hugsunarlinsur, átta víddir, og leið til að sjá meira en eina hlið áður en lífið leiðréttir þig.

Nánar um bókina →

Nýjustu skrif

Öll skrif →

Hugarró

Hugarró er ekki lúxus lengur

Tilfinningareikningurinn sem enginn sendir yfirlit um, og hvernig við byggjum upp ró á venjulegum þriðjudögum.

5 mín. lestur · Úr The Power of Emotional Currency

Bækurnar

Allar 14 bækurnar →

Níu bækur í Power-röðinni koma út mánaðarlega frá janúar til september 2027. Hver þeirra tengist einni 360° greiningu.

The Power of Cognitive Clarity
Nr. 1 · Jan 2027
The Power of Emotional Currency
Nr. 2 · Feb 2027
The Power of Grit
Nr. 3 · Mar 2027
The Power of Building Momentum
Nr. 4 · Apr 2027
The Power of Deeper Questions
Nr. 5 · Maí 2027
+ 4 í röðinni og 4 á íslensku
Sjá allar

Þrjár leiðir inn

Lesa

Pistlar, bækur og spurningar til að sitja með. Allt efnið á einum stað, á íslensku og ensku.

Fara í skrifin →

Hlusta

Fyrirlestrar, viðtöl og hlaðvörp. Bókaðu fyrirlestur fyrir vinnustaðinn eða ráðstefnuna.

Fyrirlestrar og viðtöl →

Vinna með mér

Markþjálfanám, 360° greiningar og leiðtogaþjálfun fyrir fyrirtæki, í gegnum verkefnin hér að neðan.

Sjá fyrirtækin →

Vegferðin

Frá trúbador á krám Evrópu til markþjálfanáms í sex löndum. Hér eru verkefnin sem ég vinn að í dag, og samfélagsverkefnið sem stendur mér næst.

Lesa alla söguna →

360° HPM

Greiningarvél með 360° greiningum og gervigreindarstuddri eftirfylgni: fjórar í tilbúnu kerfi og tíu í þróun. Fyrir fyrirtæki og markþjálfa um allan heim.

360hpm.com ↗

Profectus

ICF-vottað markþjálfanám, vinnustofur og Valdeflandi forysta fyrir íslensk fyrirtæki.

profectus.is ↗

Markmiðin mín

Gjaldfrjálst landsverkefni í markmiðasetningu fyrir 13–17 ára íþróttafólk, þjálfara og foreldra.

markthjalfinn.is ↗

Um Ingvar

Ingvar Jónsson

Sextán ára sagði ég móður minni að ég ætlaði að verða tónlistarmaður, kokkur, sjómaður og kennari. Einhvern veginn rættist þetta allt, þótt leiðin hafi sjaldnast verið bein, og á leiðinni fann ég lífsverkið: að hjálpa fólki að skilja sjálft sig betur.

MBA frá Copenhagen Business School, PCC-vottaður markþjálfi, höfundur ICF-vottaðs markþjálfanáms Profectus og 14 bóka um mannrækt og forystu. Valinn einn af 101 bestu markþjálfum heims árið 2019.

Lesa sögunaHvaðan ég kem og hver ég er

Ég man það eins og það hefði gerst í gær. Ég sat við eldhúsborðið heima, tæplega sextán ára, og fylgdist með mömmu elda. Hún leit upp og spurði hvað ég ætlaði að verða þegar ég yrði stór. Ég svaraði nánast samstundis: mig langaði að verða tónlistarmaður, vinna sem kokkur, fara á sjó, búa erlendis, fara í heimavistarskóla og kenna öðru fólki að ná árangri. Einhvern veginn átti þetta allt eftir að rætast, þótt leiðin hafi sjaldnast verið bein.

Í djúpu laugina án uppskriftar

Ég fékk frábært uppeldi þar sem ég naut bæði frelsis og stuðnings til að vera ég sjálfur, en ég hef aldrei verið mikið fyrir að sitja kyrr yfir bókum. Fjölskyldan flutti til Danmerkur þegar ég var tólf ára. Ég kunni ekki orð í dönsku og bað mömmu um gítar til að drepa tímann. Ég lærði á hann af gömlum gripabókum og þannig hef ég lært flest síðan: ég trúi því að maður læri best á því að stökkva í djúpu laugina og finna út úr hlutunum á leiðinni. Enda er ég afleitur bakari. Þar þarf nefnilega að fylgja uppskrift.

„Ég trúi því að maður læri best á því að stökkva í djúpu laugina og finna út úr hlutunum á leiðinni.“

Næstu ár tóku við ævintýri sem mótuðu mig. Ég fór í heimavistarskóla á Laugarvatni og síðar sem skiptinemi til Quebec í Kanada, þar sem ég lærði frönsku. Eftir það réð ég mig sem kokk á síldar- og háhyrningabátinn Guðrúnu GK og eldaði ofan í þrettán manna áhöfn, vopnaður lítilli bók frá mömmu með fjörutíu uppskriftum að heimilismat. Þaðan lá leiðin á millilandaskip sem sigldi til Evrópu. Þar var ég timburmaður, með gítarinn í farteskinu, og æfði mig á hverri frívakt. Átján ára hljóp ég í skarðið fyrir veikan trúbador á A. Hansen í Hafnarfirði. Ég var svo hræðilega lélegur að mér finnst enn erfitt að hugsa til þess, en það skipti engu máli. Ég vissi að ég yrði betri. Úr því urðu tónleikaferðir um Evrópu og níu ár sem forsöngvari Papanna, þar sem við spiluðum allt að 157 sinnum á ári.

Lífið sem skóli og tímabundnar viðgerðir

Samhliða tónlistinni fann ég snemma ástríðu fyrir því að kenna og miðla. Ég hef kennt nánast sleitulaust í þrjátíu ár án formlegrar kennaramenntunar, einfaldlega með því að hætta aldrei að læra. Ég bæti ekki aðeins við mig þekkingu þegar ég þarf á henni að halda, heldur til að skilja betur hvernig allt undir sólinni tengist með einum eða öðrum hætti. Lífið er í mínum huga einn stór skóli. Og stundum eru kennslustundirnar harðar.

Árið 2000 neyddist ég til að hætta í hljómsveitinni vegna alvarlegra veikinda, krónískrar sáramyndunar í ristli. Ég gekkst undir stóra aðgerð, fékk lífhimnubólgu og lá meira og minna á spítala í sjö mánuði. Um tíma var mér vart hugað líf. Þá reyndi verulega á viðhorfið. Áföll og sjúkdómar hafa oftar en einu sinni dæmt mig úr leik, en ég hef aldrei skilgreint mig sem sjúkling. Ég segi einfaldlega að ég sé í tímabundnum lagfæringum. Ég er heilbrigð manneskja sem þarf stundum að fara í viðgerð.

„Ég er heilbrigð manneskja sem þarf stundum að fara í viðgerð.“

Sami sjúkdómur átti eftir að banka upp á aftur. Þann 29. október 2021 fór ég í lifrarskipti í Gautaborg í Svíþjóð og í dag er sjúkdómurinn aftur kominn í lifrina. Þess vegna lít ég á hvern dag sem gjöf og er þakklátur fyrir hann. Við erum öll með síðasta söludag. Sá sem veit það fer að meta það sem lífið býður upp á í dag, í stað þess að ætla sér að njóta þess einhvern tímann seinna. Um þá hugsun snýst hamborgaralíkanið sem ég segi frá á Vegferðinni.

Fullkomlega hönnuð vandamál

Reynslan hefur kennt mér að um leið og lífið verður of þægilegt finna örlögin nánast undantekningarlaust upp á einhverju fullkomlega hönnuðu vandamáli, sem hristir upp í tilverunni og neyðir mann til að hugsa hlutina upp á nýtt frá grunni. Það er engin tilviljun að stærstu vendipunktarnir í lífi mínu hafa alltaf snúist um lærdóm, hvort sem ég kom mér sjálfur í klandrið eða fékk það óumbeðið í fangið.

Sem markþjálfi hef ég síðasta aldarfjórðunginn átt þúsundir samtala við fólk úr öllum áttum og þjálfað mig í að hlusta eftir því sem liggur á milli línanna. Þegar maður situr nógu lengi á móti fólki fer maður að sjá sömu mynstrin aftur og aftur: það sem ræður úrslitum er sjaldnast það sem kemur fyrir okkur, heldur viðhorfið sem við mætum því með. Við getum valið að vera fórnarlömb aðstæðna. Við getum líka spurt hvað lífið sé að reyna að kenna okkur einmitt núna og skipt spurningunni af hverju ég? út fyrir af hverju ekki ég?

„Það sem ræður úrslitum er sjaldnast það sem kemur fyrir okkur, heldur viðhorfið sem við mætum því með.“

Frá reynslu yfir í bækur og nýja drauma

Allur þessi efniviður, áföllin, tilraunamennskan og endalaus forvitni um hvers vegna við gerum það sem við gerum, er ástæðan fyrir því að ég fór að skrifa. Í dag snýst líf mitt um að koma þessari reynslu í hendurnar á öðrum með bókum, bæði á íslensku og á ensku í bókaflokknum The Power Series, og með greiningunum og verkfærunum sem ég hef þróað til að hjálpa fólki að sjá sjálft sig skýrar. Ég hef hægt og bítandi sleppt takinu á verkefnum fortíðarinnar, eins og veislustjórninni sem ég sinnti í rúma tvo áratugi, til að búa til pláss fyrir það sem skiptir mig mestu máli núna: að skrifa, gefa út, semja tónlist og láta gamlan draum um írskan söngleik rætast. Lífið er nefnilega enn sami stóri skólinn og þegar ég sat við eldhúsborðið tæplega sextán ára. Ég er bara kominn með betri verkfæri til að nýta það sem hann kennir mér.

Lífið er þitt listaverk

Ein spurning á viku sem fær þig til að staldra við

Við lærum eins lengi og við lifum. Sjálfsþekking er forsenda allrar annarrar þekkingar, og hún vex sjaldnast af svörum heldur af góðum spurningum sem við gefum okkur tíma til að ígrunda.

  • Ein hugmynd
  • Ein spurning til að ígrunda
  • Ein lítil æfing

Ókeypis, einu sinni í viku. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.