- Trúbador víða um Evrópu
- Forsöngvari Papa
- Háskólanám 37 ára
Áður en ég settist á skólabekk í háskóla, 37 ára gamall, hafði ég starfað sem tónlistarmaður. Ég ferðaðist um Evrópu sem trúbador og spilaði og söng á vertshúsum, og í framhaldinu varð ég forsöngvari hljómsveitarinnar Papa, sem sérhæfði sig í írskri tónlist.
Tónlistin er hluti af því hver ég er. Þegar ég varð fimmtugur fór ég því óhefðbundna leið og bauð afmælisgestunum upp á tónleika í stað hefðbundinnar veislu. Hér eru nokkur myndbönd, meðal annars frá því kvöldi.